Aðalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Árgangur 1986
  • Staður: Ísafjörður

10 ára fermingarafmæli

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Kemuru á 10 ára fermingarafmæli 2.-4. júlí??

Innskráningar kubbur

Börnin okkar

10 ára fermingarafmæli

09. febrúar 2010 klukkan 12:12

Sæl öllsömul og blessuð

Ákvað að skrifa blogg í tilefni þess að í sumar eru 10 ár frá því að við fermdumst!! Að sjálfssögðu ætlum við að fagna þessu með því að koma saman á Ísafirði og eiga glaða helgi saman.

Ég og Kristín stofnuðum hóp á facebook en það er ekki allir á facebook (allavega ekki allir komnir í hópinn) svo endilega látið þetta berast til þeirra eins og t.d. Arnars Bjarka, Davíðs Sævars o.fl.

Það var búið að stinga uppá fyrstu helginni í júlí 2.-4.júlí og senda póst á facebookmeðlimi. En síðan hafa komið nokkrar aðrar uppástungur, er ekki bara málið að kjósa? Það komast aldrei allir en reynum að finna helgi þar sem flestir komast og reynum að negla niður dagsetn. sem fyrst svo að þeir sem hafa ekki hugmynd um hvort þeir komist geti gert ráð f. helginni þegar þeir plana vinnu og sumarfrí :)

Ég held að þetta séu helgarnar sem séu í boði:

18.-20.júní
25.-26.júní
2.-4. júlí
9.-11.júlí
e-r önnur helgi??


Ástæðan fyrir því að fyrsta helgin í júlí var fyrst valin var því þá er orðið aðeins hlýrra því við höfðum hugsað að vera úti mestpartinn af öðru kvöldinu (til að sleppa við það að leigja sal bæði kvöldin) og þá eru pottþétt markaðsdagar s.s. pottþétt eitthvað ball í gangi. En það verða nú fleiri böll í gangi á vestfjörðum í sumar.

Endilega skrifið í komment hvaða helgi myndi henta ykkur best eða þá hvaða helgi hentar ekki. Þá er vonandi hægt að staðfesta eina helgi með tilliti til þeirra sem kommenta.

 
Hrafnhildur Ýr
Eins og staðan er á mér núna þá henta allar þessar helgar fínt :)
Helst kannski 9-11 júlí sem ég er ekki hrifin af því þá er Sæluhelgin á Suðureyri.. en ef þessu verður t.d. slegið saman við ballið þar þá væri það náttúrulega bara win-win situation fyrir mig :)
#1
09. febrúar 2010 klukkan 12:26
 
Kristín Ólafsdóttir
Ég legg til 2.-4. júlí.
#2
09. febrúar 2010 klukkan 12:30
Árgangur 1986Valdís: mér líst best á 2.-4.júlí, en verst á 25.-26.júní :) Hinar er ég ekki viss með þær eru svona maybe
#3
09. febrúar 2010 klukkan 12:47
 
Ásgerður
Þar sem að ég komst ekki seinast þá langar mig rosalega til að koma núna...
Ég vil als ekki fyrstu helgina í júlí þá er ættarmót hjá okkur og er ég ekki til í að sleppa því.
Ég styð seinustu helgina í júní eða aðra helgina í júlí.
9-11 júlí fær mitt atkvæði.
#4
09. febrúar 2010 klukkan 12:47
 
Oddný
Mér líst best á fyrstu helgina í júlí, önnur helgin í júlí er í lagi líka mín vegna :-)
Kemst allavegana ekki seinustu helgina í júní, er að fara í brúðkaup þá!
#5
09. febrúar 2010 klukkan 13:38
 
Bragi G.
Held að fyrsta helgin í júlí sé málið. Annars er mér svo til sama á meðan ég get fengið mér bjór.
#6
09. febrúar 2010 klukkan 15:07
 
Eygló
Ég verð ö-a í vaktavinnu þannig að ég bara skipti um helgi ef hittingur verður á vinnuhelgi hjá mér. Þannig að ég er alveg opin :) Er farin að hlakka til!
#7
09. febrúar 2010 klukkan 15:18
 
Ólína Adda
Eina helgin sem ég kemst ekki er 9-11 júlí því systir mín er að fara að gifta sig þá annars er ég nokkurn vegin opin :D En annars hlakkar mér bara til :D
#8
09. febrúar 2010 klukkan 16:07
 
Unnþór Jónsson
Breytir engu fyrir mig.
#9
09. febrúar 2010 klukkan 20:00
 
Sandra Pálsdóttir
Skiptir mig svosum ekki miklu máli.. líst vel á fystu helgina í júlí :)
#10
09. febrúar 2010 klukkan 20:23
 
Arnar Pálmason
Fyrsta helgin í júlí hljómar vel.
#11
09. febrúar 2010 klukkan 21:12
 
Gerður
já ég er líka með fyrstu helginni í júlí.
#12
09. febrúar 2010 klukkan 22:23
 
Birna Páls
Fyrsta helgin í júlí hljómar mjög vel ¨:)
#13
10. febrúar 2010 klukkan 14:32
 
Íris
Hæ krakkar mínir!

Ég kemst allar helgar, nema helgina 16.- 18. júlí.

Kveðja Íris.
#14
10. febrúar 2010 klukkan 21:13
 
Karen Gyða
skiptir engu fyrir mig er opin fyrir öllum helgum
#15
13. febrúar 2010 klukkan 09:31
 
Eva
ég er opin fyrir öllu, sérstaklega þá fyrir fyrstu 2 helgunum í júlí! :)
#16
13. febrúar 2010 klukkan 20:19
Ég verð örugglega á ferðinni vestur aðra helgina í júlí. Annars er örugglega bara best að henda skoðanarkönnun upp og sjá hvenær fólk kemst:)
Þetta yrði geðveikt stuð.
#17
16. febrúar 2010 klukkan 21:43
 
Birgir Björn
Mér líst vel á fyrstu helgina í Júlí
#18
23. febrúar 2010 klukkan 12:58
 
Dagný
Já flott fyrir mig ég kemst þá, annars eru oft árgangsmót í enduðum maí:) því þá komast svo margir, fólk ekki farið í sumarfrí..
#19
01. mars 2010 klukkan 23:15
 
Davíð Sævar
Kemst fyrstu helgina í júlí..
#20
14. mars 2010 klukkan 20:57

Skrifa athugasemd