Aðalvalmynd

Tenglar

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Árgangur 1986
  • Staður: Ísafjörður

10 ára fermingarafmæli

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Kemuru á 10 ára fermingarafmæli 2.-4. júlí??

Innskráningar kubbur

Börnin okkar

2.-4.júlí 2010

01. júní 2010 klukkan 22:14

Skv. kommentum hér að neðan þá hentar þessi helgi best og hefur hún verið valin. 2.-4. júlí á Ísafirði. Kristín er búin að gera event á facebook svo endilega meldið ykkar þar eða hér hvort þið komist og hvort það er +1 með ykkur en makar eru velkomnir.

Við þurfum að sjá sem fyrst hverjir komast til að sjá hvað þetta mun kosta per mann. Því það er salur, matur o.fl. sem þarf að deilast á okkur og verður það gjald staðfestingargjald. Síðast voru einhverjir sem að borguðu ekki fyrr en seint um kvöldið eða gleymdu því og það gengur ekki núna.

Það er búið að panta gott veður og gróf dagskrá komin:

Grill á föstudagskvöldið. Lopapeysu - grill - útilegustemmarinn í hámarki.
Mæta með sitt eigið (grill - einnota grill, kjöt, pullur, drykki)
Leikir, söngur og gleði.

Hittumst aftur kl.14:00 á laugardaginn. Bannað að vera of þunnur og mæta ekki. Meðal annars er á dagskrá frumlegur og skemmtilegur "rat"leikur, matur og gleði langt frameftir

Þetta verður hörkustuð!!

-Valdís

Skrifa athugasemd