Árgangsmót 13. - 14. júlí 2007!
23. júní 2007 klukkan 20:59
Sælt veri fólkið:) við erum hérna nokkrar stelpur úr árgangnum saman í grilli í frábæru veðri fyrir vestan:) Lambakjöt og kjúklingabringur, bananar og súkkulaði og ég veit ekki hvað og hvað:) Endalaust gott! Eins og eðlilegt telst eru málin rædd á svona hitting og það kom upp umræða um árgangsmótið góða sem er að koma í sumar núna um miðjan júlí :) Heyrst hefur að venjan sé á árgangsmótum að hafa fyrra kvöldið makalaust, þ.e. án maka og nýta svo laugardaginn í að sýna sig og sjá aðra:) Hvernig er stemmarinn fyrir því? Nú var hann Davíð Sævar t.d. að trúlofa sig (til hamingju með það btw) ég myndi endilega vilja hafa Rögnvald með og lengi mætti telja ! Hvernig er stemmarinn fyrir því? Það væri frábært að fá að kynnast að auki nýju fólki sem og að hitta gömlu félagana!! Sum okkar eru flutt burtu frá Ísafirði og eiga kannski kærasta/kærustu sem þeim langar að bjóða með í heimabæinn.. Þetta er amk eitthvað sem vert er að spá í - hugmynd ! Endilega láttu í ljós þína skoðun.. :)
Birna :)
Birna :)
Sumar og sól fyrir vestan
15. maí 2007 klukkan 20:00
Hæhæ, ég vildi bara láta vita af mér!
vonandi að það verði gaman hjá okkur í sumar.:)
En ég er frekar forvitin að vita hver setti þessa mynd af mér inná myndaalbúmið?
veit ekki alveg hvort þetta eigi að vera grín eða ekki, ég sé mér held ég ekki fært um að mæta í júlí ef ég lýt svona illa út.... sjáumst kannski næst..
Kveðja.Dagný Hermannsdóttir

JAMM
11. maí 2007 klukkan 23:07
Sælt veri fólkið, ég er komin með 3 krakka og 2 fósturbörn og bý hjá ömmu Soffíu hérna á breiðdalsvík, ég er að vinna með Hjalta á höfninni og Gulla sendli, við félagarnir fluttum samann austur og erum komnir með bisness, við seljum þyrstum ferðamönnum sem hafa villst límonaði...... NEI ég ætla nú ekki að farað skrifa ævisöguna hérna:) hehe, NEI ég læt mig ekki vanta á gott djamm.......:)
kv Ómar Örn
Hæ öll
10. maí 2007 klukkan 16:09
Var að fá notendanafnið og lykilorðið rétt áðan þannig að ég ákvað að skrifa eitthvað smá.
Þar sem að ég hef ekki hitt flest ykkar í eitthvað í kringum 6 ár þá hlakka ég til að hitta ykkur aftur. Það hefur ekki neitt svakalega mikið gerst hjá mér síðan ég fór frá ísó nema kannski að ég eignaðist dóttur, en þið vitið það örugglega flest, hún er orðin tveggja ára og svo dugleg að tala og er hressari en ég var þegar ég var á hennar aldri sem er bæði gott og slæmt því ég var algjör stuðbolti og erfitt að hafa hemil á mér og hún er meiri stuðbolti en ég var þannig að ég á í fullu fangi með hana.
Hér er linkur á heimasíðuna hennar www.emeliavaley.barnaland.is fullt af myndum
Ég á ennþá eitt og hálft ár eftir í stúdentsprófið þar sem ég missti niður eitt ár þegar snúllan mín fæddist og svo hef ég verið mjög veik frá því um versló í fyrra og má ekki við miklu stressi eða áhyggjum því þá gefur líkaminn sig og ég lamast í einhvern tíma... en þetta hefur ekki skeð í rúma tvo mánuði þannig að ég er bjartsýn á að þetta sé að hætta hjá mér...
Ég bý enn á akureyri en flyt suður yfir sumarið þar sem að ég fékk vinnu þar en ekki hér á ak og bý hjá ömmu minni í kópavogi á meðan... það sárasta við það er að dóttir mín verður hér á akureyri og ég mun hitta hana lítið en reyna að hitta hana eins mikið og ég get...
Fer svo til Canada á sunnudaginn í 3 vikur að hitta bróður mömmu og fjölskylduna hans og ég segi ykkur frá ferðinni þegar ég kem á ísó, ef þið viljið heyra um hana þ.e.a.s...
En já ég held að þetta sé komið nóg hjá mér þið fenguð vonandi smá innsýn inní mitt líf og ef þið viljið vita meira þá er um að gera að spurja..
Sé ykkur í sumar
Halldóra
Þakka boðið
10. maí 2007 klukkan 14:14
Sælt fyrir fólkið.
Vildi bara skella hér inn nokrum línum og þakka fyrir mig. Við Davíð Sævar erum svona að ræða þetta og langar soldið að gera allavega okkar besta til að reyna að mæta. Það væri náttúrulega bara gaman að hitta alla aftur, þó svo að maður reki nú augun í einn og annan hér í bænum
Ætla að láta þetta duga því Hagkaup í skeifunni kallar á starfsmanninn sinn í hjólunum og leikfangadeildinni.
Kv.
Sveppi (Sverrir Franz)
Vildi bara skella hér inn nokrum línum og þakka fyrir mig. Við Davíð Sævar erum svona að ræða þetta og langar soldið að gera allavega okkar besta til að reyna að mæta. Það væri náttúrulega bara gaman að hitta alla aftur, þó svo að maður reki nú augun í einn og annan hér í bænum
Ætla að láta þetta duga því Hagkaup í skeifunni kallar á starfsmanninn sinn í hjólunum og leikfangadeildinni.Kv.
Sveppi (Sverrir Franz)
1986
03. maí 2007 klukkan 16:58
Sæl verið þið..
langaði bara að þakka fyrir bréfið. var voða ánægð að mér væri boðið. ég er sko til í þetta og ætla að panta mér ferð á Ísó til að hitta ykkur :D það eru nefnilega 3 ár síðan að ég kom seinnast og eru margar búnar að skamma mig fyrir það..en núna kem ég :D ég hef enga afsökun, ég er ekki að vinna þessa helgi..en flott hlakka endalaust til að sjá ykkur öll :)
Gunna Sigga :D
Reunion!
27. apríl 2007 klukkan 02:15
Valdís.. var þessi geggjaða hugmynd um reunion komin um páskana eða?? Mig minnir endilega að ég hafi minnst á þetta við þig þá, allavega við einhvern! Það er alveg kominn tími á þetta og frábært af ykkur að taka frumkvæðið og redda þessu!! Þið eruð æði!!
Ætla ekki allir að mæta?? Ég veit að ég mæti, það stoppar mig sko ekkert!! :)
Hlakka til að sjá hópinn allan saman aftur! Og enn á ný, frábært framtak!! :)
- Hrafnhildur Ýr -
Ætla ekki allir að mæta?? Ég veit að ég mæti, það stoppar mig sko ekkert!! :)
Hlakka til að sjá hópinn allan saman aftur! Og enn á ný, frábært framtak!! :)
- Hrafnhildur Ýr -
Takk fyrir mig
26. apríl 2007 klukkan 20:06
Hæ hæ allir ég leifði mér að bretta aðeins síðuni....
Mér hlakkar geggjað til þó að mín sé edrú.:O) en ég helt að ég þoli ykkur alveg edrú ég gerði það í 10 ár HE HE langaði bara að tjá mig aðeins lífið í rvk er bara gott ég og hann Þórður sonur minn erum hjá mömmu minni en erum að fara í okkar íbúð 1 júní en annas er ekkert að frétta af okkur... hittumst öll á djamminu í sumar þetta verður skrautlegt.....
Kv Sólrún Ósk
Kv Sólrún Ósk
Árgangur 1986
23. apríl 2007 klukkan 15:26
Veriði sæl og blessuð....
Þar sem við erum öll orðin svo gömul þá er kominn tími á reunion, gera síðu saman og allur pakinn bara.
Væntanlega eruði búin að fá bréf til ykkar. Mér til mikillar gleði var þessi síða stofnuð eftir að öll bréfin voru prentuð! hehe En ég vona að notendanafn og lykilorð hafi komist til skila. Endilega þið öll sem kíkið hingað inn að skilja eftir ykkur spor í kommentin. Hvað finnst ykkur um hittinginn og þetta allt saman...
Vonandi verða svo allir duglegir að skrifa inn á þessa síðu og setja inn upplýsingar, myndir, tengla og ég veit ekki hvað og hvað.
-valdís